01.11.26 - 18:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bæði Akureyrarliðin vilja Nikolaj - Segja frá gylliboði

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj Hansen, leikmaður Víkings, er eftirsóttur en honum var tjáð í vikunni að hann mætti líta í kringum sig.
Nikolaj hefur verið leikmaður Víkings frá 2017 og var fyrirliði liðsins áður en Oliver Ekroth tók við bandinu undir stjórn Sölva Geirs Ottesen.

TENGT EFNI
Niko Hansen fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig
Vísir.is greinir frá því að hann hafi fengið rausnarlegt tilboð frá KA sem féll úr Bestu deildinni í sumar. Hann fær ansi góð laun til að flytja til Akureyrar og spila í Lengjudeildinni næsta sumar.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa grannar KA í Þór einnig áhuga á honum en Þór hélt sæti sínu í Bestu deildinni á kostnað KA eftir gríðarlega spennandi lokaumferð.
Hann hefur einnig verið orðaður við lið á borð við Breiðablik, FH og Keflavík.
KA er í þjálfaraleit en Srdjan Tufegdzic, Túfa, er efstur á óskalistanum. Túfa spilaði með KA frá 2006 til 2012, var aðstoðarþjálfari liðsins frá 2012 til 2015 og aðalþjálfari frá 2015 til 2018.

Heimild: Vísir.is

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð