Fotbolti.net
04.04.21 - 20:56
Aksentije Milisic

Spánn: Atletico Madrid tapaði - Barca getur minnkað bilið í eitt stig

Acuna fagnar marki sínu.

Acuna fagnar marki sínu.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Sevilla 1 - 0 Atletico Madrid</b>
0-0 Lucas Ocampos ('8 , Misnotað víti)
1-0 Marcos Acuna ('70 )
Sevilla og Atletico Madrid mættust í stórleik umferðarinnar í La Liga deildinni á Spáni.

Atletico hefur verið að gefa eftir upp á síðkastið en liðið er þó enn á toppi deildarinnar. Sevilla er í fjórða sætinu.

Heimamenn fengu vítaspyrnu á áttundu og var það Lucas Ocampos sem steig á punktinn. Jan Oblak gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði spyrnuna.

Staðan var markalaus í hálfleik. Á 70. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Hægri bakvörðurinn Jesus Navas átti þá fyrirgjöf á vinstri bakvörðinn, Marcos Acuna, sem stangaði knöttinn glæsilega í netið.

Leikmenn Atletico Madrid voru brjálaðir en þeir vildu fá hendi í aðdragandanum. Þeir höfðu mikið til síns máls en VAR ákvað að gera ekkert í atvikinu.

Correa fékk dauðafæri á 91. mínútu eftir frábæran undirbúning frá Luis Suarez en Bono varði mjög vel í marki heimamanna.

Meira var ekki skorað í þessum leik og því frábær sigur hjá Sevilla staðreynd. Sevilla er nú með 58 stig í fjórða sæti deildarinnar.

Atletico er í efsta sætinu með 66 stig. Ef Barcelona vinnur Real Valladolid á morgun þá er liðið einungis einu stigi frá toppnum. Barcelona og Atletico eiga eftir að mætast innbyrðis.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla12-218
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Alaves12-213
10Villarreal11012
11Celta11012
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.