04.05.06 - 16:16
Andri Fannar Stefánsson
McClaren tekur við Englendingum (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Steve McClaren mun taka við enska landsliðinu af Sven Goran Eriksson eftir HM í sumar en frá þessu var greint í dag. Mikið hafði verið rætt um málið í fjölmiðlum og hafa menn eins og Luiz Felipe Scolari og Sam Allardyce verið títt nefndir sem arftakar Sven Goran.
Nafn McClaren hefur einnig borið oft á góma í umræðinni en hann hefur aðstoðað Sven Goran frá því árið 2001 og mun hann einnig aðstoða Svíann með liðið á HM í sumar.
„Þetta er mesti heiður sem þjálfara getur hlotnast og þetta er auðvitað hápunkturinn á ferli mínum. Þetta er vissulega mjög mikil áskorun, en ég ætla mér að standast hana. Ég hef notið mín hér hjá Middlesbrough og er mjög þakklátur félaginu. Þetta var hins vegar tækifæri sem ég gat ekki neitað,“ sagði hinn 45 ára gamli McClaren mjög ánægður í adg.
Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við enska knattspyrnusambandið sem tekur gildi fyrsta ágúst en hann mun klára tímabilið með Middlesbrough sem á leik eftir í ensku úrvalsdeildinni sem og úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða gegn Sevilla.