Fotbolti.net
04.05.07 - 20:49
Magnús Már Einarsson

Jóhann Helgason á láni til Grindvíkinga (Staðfest)

Jóhann í leik með Val gegn Grindavík í Lengjubikarnum í vetur.

Jóhann í leik með Val gegn Grindavík í Lengjubikarnum í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Grindavík úr fyrstu deild hefur fengið Jóhann Helgason að láni frá Val út tímabilið en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolti.net nú í kvöld.
Jóhann sem er uppalinn hjá KA mætti á sína fyrstu æfingu hjá Grindavík í kvöld en hann lék með liðinu síðastliðið sumar áður en að hann fór í Val síðastliðið haust.

Alls lék Jóhann ellefu leiki með Grindavík í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar og hann var í kjölfarið valinn efnilegastur á lokahófi félagsins.

Jóhann sagðist í samtali við Fótbolti.net hlakka til að spila með Grindvíkingum í sumar og ætlar hann að reyna að hjálpa liðinu að komast aftur í Landsbankadeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.