Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   mán 04. maí 2026 21:05
Brynjar Ingi Erluson
England: Man City tapaði stigum í ótrúlegum leik í Liverpool-borg
Man City er nánast úr leik í titilbaráttunni
Man City er nánast úr leik í titilbaráttunni
Mynd: EPA
Everton skoraði þrjú í seinni
Everton skoraði þrjú í seinni
Mynd: EPA
Everton 3 - 3 Manchester City
0-1 Jeremy Doku ('43 )
1-1 Thierno Barry ('68 )
2-1 Jake O'Brien ('73 )
3-1 Thierno Barry ('81 )
3-2 Erling Haaland ('83 )
3-3 Jeremy Doku ('90 )

Man City tapaði stigum í titilbaráttunni í 3-3 jafntefli gegn Everton í stórkostlegum fótboltaleik í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Hill Dickinson-leikvanginum í Liverpool-borg í kvöld.

Man City átti tvo leiki til góða á Arsenal í titilbaráttunni sem var með sex stiga forystu fyrir leikinn í kvöld. Man City mátti ekki við því að tapa stigum, enda er Arsenal með aðeins þægilegri leikjadagskrá í síðustu umferðunum.

Jeremy Doku skoraði frábært mark á 43. mínútu er hann stýrði boltanum í samskeytin vinstra megin eftir gott spil gestanna og þá kom upp umdeilt atvik undir lok fyrri hálfleiksins er Michael Keane fór í ljóta tæklingu á Doku, en uppskar aðeins gult spjald.

Heppinn að sleppa með gult spjald þarna enda hefði auðveldlega hægt að gefa honum rautt.

Saga Man City á þessu tímabili er á þann veg að liðið fær á sig mörk í síðari hálfleik. Tuttugu af þeim 29 mörkum sem liðið hafði fengið á sig hafði komið í síðari hálfleik sem gaf Everton von.

Það hefur greinilega verið þeim hugfast því liðið náði að skora þrjú mörk á þrettán mínútum og allt hófst það á mistökum Marc Guehi í vörninni.

Thierno Barry tók hlaupið bakvið vörnina á meðan Guehi elti boltann. Hann átti síðan slaka sendingu niður á Gianluigi Donnarumma sem Barry komst inn í og jafnaði metin.

Jake O'Brien skoraði annað markið fimm mínútum síðar með skalla eftir hornspyrnu og þá gerði Barry annað mark sitt á 81. mínútu er Merlin Rohl keyrði upp hægri vænginn og upp að teignum áður en hann átti misheppnað skot sem breyttist í gæðasendingu á Barry sem skoraði af stuttu færi.

Erling Braut Haaland minnkaði muninn strax í næstu sókn með vippu eftir sendingu frá Mateo Kovacic og hélt Man City inn í leiknum.

Á síðustu sekúndum uppbótartímans jafnaði Doku með öðru stórkostlegu marki er hann setti boltann með hægri fyrir utan teig efst upp í fjærhornið.

Gæti verið mikilvægt mark fyrir lokaleikina í deildinni, en staðan er samt sú að Arsenal er með fimm stiga forystu á toppnum. Man City getur minnkað muninn í tvö stig með leiknum sem það á til góða, en útlitið er alls ekki gott fyrir Pep Guardiola og lærisveina hans sem gætu hafa tapað titlinum í kvöld.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 35 11 11 13 38 44 -6 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner