04.06.07 - 11:02
Magnús Már Einarsson
Titus Bramble til Wigan (Staðfest)

Titus Bramble er farinn í Wigan.

Mynd: Getty Images

Titus Bramble er farinn í Wigan.

Mynd: Getty Images
Chris Hutchings sem var ráðinn stjóri Wigan á dögunum hefur fengið fyrsta leikmann sinn til félagsins en hann hefur samið við varnarmanninn Titus Bramble sem var látinn fara frá Newcastle á dögunum.
Bramble sem er 25 ára hefur gert þriggja ára samning við Wigan en hann hafði áður verið orðaður við Portsmouth.
,,Það er frábært fyrir okkur að fá hann. Hann mun koma með reynslu í öftustu línu og við munum halda áfram að leita að mönnum," sagði Hutchings við heimasíðu Wigan.
,,Það er frábært fyrir okkur að fá hann. Hann mun koma með reynslu í öftustu línu og við munum halda áfram að leita að mönnum," sagði Hutchings við heimasíðu Wigan.
Heimild: Sky
