Fotbolti.net
04.06.25 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Carrick rekinn frá Middlesbrough (Staðfest)

Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick var í morgun rekinn úr starfi sínu sem stjóri Middlesbrough.

Carrick hefur stýrt Middlesbrough með fínum árangri frá 2022. Undir hans stjórn endaði liðið í fjórða, áttunda og tíunda sæti Championship-deildarinnar.
Síðustu vikur tímabilsins voru hins vegar erfiðar og misstu þeir af því að komast í umspilið um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Carrick var með samning til 2027 en Middlesbrough hefur tekið ákvörðun um að rifta honum núna.

Carrick, sem var lengi leikmaður Manchester United, hefur verið vinsæll hjá stuðningsmönnum Boro en er núna orðinn atvinnulaus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.