Sádi-arabíska félagið Al Hilal tilkynnti í kvöld um komu ítalska þjálfarans Simone Inzaghi.
Inzaghi hætti hjá Inter á dögunum og ákvað að elta seðilinn til Sádi-Arabíu.
Hann náði frábærum árangri á fjórum árum sínum hjá Inter, þar sem liðið varð ítalskur deildarmeistari einu sinni, bikarmeistari tvisvar og komst í úrslit Meistaradeildarinnar í tvígang.
Inzaghi skrifaði undir tveggja ára samning við Al Hilal í Sádi-Arabíu í kvöld.
Ítalinn mun þéna um 26 milljónir evra í árslaun.
Al Hilal hafnaði í öðru sæti deildarinnar á tímabilinu og komst í undanúrslit Meistaradeildar Asíu.
Fyrsta verkefni Inzaghi verður að stýra liðinu á HM félagsliða sem hefst síðar í þessum mánuði, en fyrsti leikur liðsins verður gegn fimmtánföldum Evrópumeisturum Real Madrid.
The Italian genius is here ? ????
— AlHilal Saudi Club (@Alhilal_EN) June 4, 2025
Welcome, ???????????????????????? ???????????????????????????? ??
pic.twitter.com/8BZAz4tIMr
Athugasemdir