Enski sóknarmaðurinn Liam Delap er formlega genginn til liðs við Chelsea frá Ipswich Town.
Þessi 22 ára gamli leikmaður spilaði aðeins eitt tímabil með Ipswich og skoraði 12 deildarmörk.
Delap er uppalinn hjá Manchester City en yfirgaf félagið á síðasta ári í leit að fleiri mínútum.
Frábær frammistaða hans með nýliðunum gerði hann að einum heitasta bita sumarsins og hefur hann nú tekið stökkið.
Chelsea vann baráttuna um Delap og tilkynnti kaupin á honum í kvöld, en félagið virkjaði 30 milljóna punda kaupákvæði í samningi hans og skrifaði hann undir sex ára samning.
„Ég skil stærð félagsins og sé á hvaða braut liðið er með alla þessa leikmenn og þennan þjálfara. Þetta verður ótrúlegur staður fyrir mig til að þróa ferilinn og vonandi get ég afrekað magnaða hluti hér og hjálpað félaginu að vinna fleiri titla,“ sagði Delap.
Liam hefur ekki langt að sækja fótboltahæfileikana, en faðir hans er Rory Delap sem lék með Derby County, Sunderland, Southampton og Stoke City á Englandi.
It's official. ??
— Chelsea FC (@ChelseaFC) June 4, 2025
Athugasemdir