Fotbolti.net
04.06.25 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson

Mings framlengir við Aston Villa til 2027 (Staðfest)

Tyrone Mings

Tyrone Mings

Canon

Mynd: EPA

Enski varnarmaðurinn Tyrone Mings hefur framlengt samning sinn við Aston Villa um eitt ár eða til ársins 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Mings er 32 ára gamall miðvörður sem hefur leikið með Villa frá 2019.

Hann kom fyrst á láni frá Bournemouth og hjálpaði liðinu upp í úrvalsdeildina áður en Villa gerði skiptin varanleg.

Englendingurinn átti fast sæti í byrjunarliði Villa áður en hann meiddist á hné í byrjun tímabils árið 2023 og sneri ekki aftur fyrr en í október á síðasta ári.

MIngs lék 21 leik í öllum keppnum á nýafstöðnu tímabili og hefur hann nú fengið nýjan samning sem heldur honum hjá félaginu til 2027.

Á þessum sex árum sem hann hefur verið hjá Villa hefur hann spilað 187 leiki og skorað 8 mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.