Fotbolti.net
04.06.25 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Willian og Vinicius yfirgefa Fulham (Staðfest)

Willian og Vinicius yfirgefa Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Fulham tilkynnti í dag að þeir Willian og Carlos Vinicius myndu yfirgefa félagið þegar samningar þeirra renna út í lok mánaðar.

Kantmaðurinn Willian, sem verður 37 ára í ágúst, sneri aftur til Fulham fyrr á þessu ári á frjálsri sölu, hann er að klára sinn þriðja kafla hjá Fulham en hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2022.

Framherjinn Vinicius var ekki í stóru hlutverki, var þriðji kostur á eftir þeim Raul Jimenez og Rodrigo Muniz.
Fulham hefur boðið fyrirliðanum Tom Cairney nýjan samning en hann hefur verið orðaður við Wrexham. Hægri bakvörðurinn Kenny Tete er einnig með samningstilboð á borðinu.

Fulham átti fínasta tímabil og endaði í 11. sæti úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.