Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 11:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wirtz tjáir sig um sögusagnir: Hver segir að ég vilji tíuna?
Florian Wirtz.
Florian Wirtz.
Mynd: EPA
Það eru núna viðræður í gangi um það að Florian Wirtz fari til Liverpool.

Ensku meistararnir eru að vinna í því að kaupa hann frá Bayer Leverkusen en þýska félagið er að biðja um 150 milljónir evra til þess að kaupin fari í gegn.

Wirtz valdi sjálfur að fara til Liverpool en það var mikill áhugi á honum frá Bayern München og Manchester City. Hann er spenntastur fyrir Liverpool.

Það er mikið fjallað um Wirtz á bæði Bretlandseyjum og í Þýskalandi þessa stundina, en leikmaðurinn tjáði sig um sögusagnir á samfélagsmiðlum í gær. Þær sögusagnir voru á þá leið að hann væri að biðja um tíuna frá Liverpool en Alexis Mac Allister, einn besti miðjumaður ensku úrvalsdeildarinnar, er núna með það númer.

„Hver segir að ég vilji tíuna? Ég virði leikmenn. Ekki trúa öllu sem þið lesið," sagði Wirtz.

Það virðast vera allar líkur á því að Wirtz gangi í raðir Liverpool en það er þá spurning hvaða númer hann fær.
Athugasemdir
banner