Fotbolti.net
04.06.26 - 15:54
Kári Snorrason

Gabriel þakklátur fyrir huggun samlandans eftir vítaklúðrið

Eftir vítaklúðrið.

Eftir vítaklúðrið.

Canon

Mynd: EPA

Gabriel sendi Marquinhos þakkarskilaboð daginn eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir að samlandi hans huggaði hann í kjölfar vítaklúðursins.

Marquinhos, fyrirliði PSG og samherji Gabriel í brasilíska landsliðinu, hljóp beint til hans og faðmaði hann eftir að Gabriel skaut yfir úr vítaspyrnukeppninni.

Á blaðamannafundi brasilíska landsliðsins sagði Marquinhos að Gabriel hefði þakkað sér fyrir faðmlagið og stuðninginn.
Hann sagðist hafa fundið til með Gabriel enda hefði hann sjálfur upplifað svipaða stund með Brasilíu árið 2022 þar sem hann klúðraði vítaspyrnu gegn Króatíu.

„Ég sagði honum að halda höfðinu hátt, hann hefði átt frábært tímabil og frábæran leik. Að mínu mati var hann besti miðvörður heims á þessu tímabili og þetta augnablik breytir því ekkert,“ sagði Marquinhos.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.