26.07.26 - 22:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Xhaka elskar Sunderland"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Granit Xhaka, fyrirliði Sunderland, var orðaður við Chlesea í sumar en Regis Le Bris, stjóri liðsins, hefur staðfest að hann verði áfram hjá félaginu.
„Þessu máli er lokið. Hann hefur verið mjög skýr varðandi framtíðina sína. Hann elskar Sunderland, hann vill vera áfram í Sunderland. Han vill búa til framtíð félagsins. Hann er góður fyrirliði og góður leiðtogi," sagði Le Bris.
Xhaka gekk til liðs við Sunderland frá Leverkusen síðasta sumar en hann spilaði undir stjórn Xabi Alonso, núverandi stjóra Chelsea, í Þýskalandi.
Sunderland hefur verið mjög virkt á leikmannamarkaðnum undanfarin ár. Liðið hafnaði í 7. sæti sem nýliði í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Le Bris segir að sumarglugginn verði mun rólegri en undanfarin ár.
„Ég ætla ekki að gefa ykkur neinar upplýsingar. Við erum að leggja hart að okkur á bakvið tjöldin og það er mjög mikilvægt að þegja því annars verður þetta óreiða."