Rúnar Kristins eftir bragðdaufan leik: þetta var bara 0-0 leikur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram tók á móti FH á Lambhagavellinum í 16. umferð Bestu deildar karla þar sem lokatölur voru 0-0. Leikurinn var heldur rólegur en bæði lið fengu einhver færi til þess að stela sigrinum. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Rúnari Kristinssyni, þjálfara Fram, eftir leikinn.
„Þetta var sennilega bara sanngjarnt jafntefli, þetta var leikur feilsendinga og vantaði kraft í bæði liðin fannst mér. Þegar einhverjar opnanir sköpuðust þá vantaði bara betri sendingar, betri tímasetningar á öllum hlaupum og þetta var bara 0-0 leikur.''
Hvað var það helst sem vantaði upp á hjá Fram liðinu í dag?
„Mér fannst bara vanta kraft í bæði lið, kannski var það sólin og hitinn, það dró aðeins af mönnum frekar fljótt en ef ég tala bara fyrir mitt lið þá fannst mér við eiga allt of mikið af feilsendingum, litlar og stuttar sendingar, fyrirgjafir og þegar við erum að komast í sénsa að búa til færi þá bara klikkar sendingin eða móttakan. Ég ætla ekki að segja að þetta sé kæruleysi eða værukærð en þetta var bara einn af þessum dögum þar sem þetta gekk ekki alveg nægilega vel upp fyrir okkur.''
Fram hefur spilað mikið af markaleikjum og skorað mikið á tímabilinu þannig þetta var heldur óhefðbundinn leikur miðað við tímabilið hingað til.
„Sérstaklega þá hafa leikir okkar við FH verið miklir markaleikir, en maður svo sem óskar þess ekki í hvert einasta skipti en ég hefði viljað fá aðeins betri frammistöðu og aðeins meiri gæði í það sem við vorum að gera fram á við. Sérstaklega í fyrri hálfleik þá fannst mér við vera aðeins með yfirhöndina en náum bara ekki að nýta það.''
Næsti leikur Fram er gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á laugardaginn, þar sem Þjóðhátíð verður í fullu fjöri, hvernig leik má búast við þar?
„Vonandi betri frammistöðu hjá okkur heldur en í dag en það er erfitt að fara til Vestmannaeyja. Við verðum bara að bíða og sjá hvernig stemningin verður þá, mikið af fólki, veðrið og þess háttar. En yfirleitt eru alltaf skemmtilegir leikir í Eyjum, það er mikið tekist á og við þurfum að eiga betri leik en í dag til þess að vinna þá.''
