Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 12:07
Elvar Geir Magnússon
Iraola lentur í Liverpool - „Besti kosturinn að fá hann inn“
Andoni Iraola.
Andoni Iraola.
Mynd: EPA
Spánverjinn Andoni Iraola flaug frá San Sebastian og lenti í Liverpool í morgun en hann mun skrifa undir tveggja ára samning sem nýr stjóri Liverpool.

Þessi 43 ára stjóri ákvað að láta staðar numið hjá Bournemouth eftir tímabilið en hann náði virkilega flottum árangri hjá félaginu og liðið spilaði skemmtilegan bolta.

Eftir tímabilið ákvað Liverpool að láta Arne Slot fara en leikstíll hans hafði verið gagnrýndur og árangurinn á tímabilinu voru vonbrigði.

Danny Murphy, sérfræðingur BBC og fyrrum leikmaður Liverpool, er spenntur fyrir ráðningunni á Iraola.

„Ég er ansi spenntur, eftir að maður hefur fylgst með Bournemouth spila má fastlega búast við því að hann spili á sama hátt hjá Liverpool. Liðið verður hugað og mun reyna að pressa lið með mikilli orku og sóknarbolta," segir Murphy.

„Það var besti kosturinn í stöðunni að fá inn Iraola því stuðningsmenn fara inn í nýtt tímabil með von og spennu, frekar en hræðslu."


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Mun ráðning Liverpool á Iraola reynast félaginu farsæl?
Slapp