Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 18:24
Ívan Guðjón Baldursson
Sagður hafa óskað eftir sölu frá Liverpool
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
TEAMtalk er meðal fjölmiðla á Englandi sem greina frá því að Cody Gakpo sé búinn að biðja um að vera seldur frá Liverpool eftir brottrekstur Arne Slot.

Gakpo hefur verið hjá Liverpool í þrjú og hálft ár og komið að 73 mörkum í 180 leikjum. Hann átti þó erfitt uppdráttar á nýliðnu tímabili þar sem hann kom aðeins að 15 mörkum með beinum hætti í 52 leikjum.

Liverpool borgaði 50 milljónir evra til að kaupa Gakpo á sínum tíma og núna óttast leikmaðurinn um að passa ekki í leikkerfið sem Andoni Iraola, sem er að taka við Liverpool, vill spila.

Gakpo skrifaði undir nýjan samning við Liverpool síðasta sumar og er með fjögur ár eftir. Talið er að félagið myndi samþykkja um 50 milljónir evra til að selja hann.

Gakpo er 27 ára gamall og er Atlético Madrid sagt vera áhugasamt um að krækja í hann. Bayern sýndi Gakpo áhuga í fyrra en sá áhugi hefur dvínað.

Gakpo er á háum launum hjá Liverpool og því gæti félagið samþykkt að lána hann út á næstu leiktíð gegn fullum launagreiðslum. Það er þó skortur á kantmönnum innan herbúða félagsins og ef Liverpool tekst ekki að kaupa inn nógu marga kantmenn mun Iraola þurfa á Hollendingnum að halda.

Gakpo er í landsliðshópi Hollands sem fer á HM. Hann á 19 mörk í 49 A-landsleikjum.

Rio Ngumoha yrði þá eini kantmaðurinn eftir í herbúðum Liverpool, ásamt Jeremie Frimpong, fyrst Mohamed Salah er að renna út á samningi. Þá er sterklega búist við að Federico Chiesa verði seldur.

Liverpool vill kaupa Yan Diomande, ungan kantmann RB Leipzig, en hann gæti reynst afar dýr þar sem Paris Saint-Germain er talið hafa áhuga á honum. Eli Junior Kroupi kemur einnig til greina, en hann er líka gríðarlega eftirsóttur. Kroupi leikur fyrir Bournemouth.

Leipzig vill fá rúmar 100 milljónir evra fyrir sinn mann og gæti Bournemouth heimtað enn hærri upphæð fyrir Kroupi.

   27.05.2026 20:36
Frimpong ekki valinn í hollenska hópinn fyrir HM

Slapp
banner
banner
banner