Fotbolti.net
04.07.07 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Markvörður Ghana til Birmingham (Staðfest)

Kingston í leik með Ghana á HM

Kingston í leik með Ghana á HM

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Birmingham hafa gengið frá kaupum á landsliðsmarkverði Ghana, Richard Kingston, en hann kemur frá Antalyaspor í Tyrklandi.
Kingston sem er 29 ára stóðst læknisskoðun á St Andrews í gær og skrifaði undir tveggja ára samning við liðið.

,,Ég hafnaði tveim tilboðum, einu frá Danmörku og einu frá Ísrael. Það hefur alltaf verið draumur minn að spila í Englandi." sagði Kingston sem var á láni hjá íslendingaliðinu Hammarby.

Kingston mun ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur af atvinnuleyfi á Bretlandi en hann er með tyrkneskan ríkisborgararétt en kappinn sló í gegn á HM í Þýskalandi í fyrra í spútnikliði Ghana.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.