Fotbolti.net
04.07.07 - 14:22
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Tyrone Mears til Derby County (Staðfest)

Tyrone Mears til Derby County (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Derby County hefur gengið frá kaupunum á varnarmanninum Tyrone Mears frá West Ham á eina milljón punda.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur verið á láni á Pride Park síðan í janúar og átti stóran þátt í velgengi liðsins í Championship deildinni.

Mears, sem skrifaði undir þriggja ára samning, byrjaði ferilinn hjá Manchester City áður en hann fór til Preston árið 2002. Þar spilaði hann í fjögur ár áður en hann var seldur til West Ham síðasta sumar.

Hjá Preston spilaði hann einmitt undir stjórn Billy Davies sem er núverandi stjóri Derby.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.