Fotbolti.net
04.07.07 - 14:57
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Teddy Sheringham til Colchester (Staðfest)

Teddy Sheringham til Colchester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum enski landsliðsmaðurinn Teddy Sheringham hefur gengið til liðs við Colchester United.
Þessi 41 árs gamli sóknarmaður skrifaði undir eins árs samning á Leyer Road en hann hefur verið án félags síðan hann fór frá West Ham undir lok síðasta tímabils.

Áður hafði verið talið að Sheringham yrði einnig þjálfari hjá félaginu en svo er ekki og er hann aðeins leikmaður þar.

,,Ég vil spila og ég hef mikinn metnað. Fyrir nokkrum vikum talaði ég við stjórann Geraint Williams. Ég var mjög heillaður af áætlunum hans fyrir klúbbinn og hvað hann vissi um mig sem leikmann, og hvernig hann ætlar að nota mig á þessu tímabili,” sagði Sheringham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.