Manchester United rúllaði yfir Bournemouth eftir að hafa lent undir snemma leiks. Lokatölur á Old Trafford í dag voru 5-2.
Allir þrír fremstu menn Man Utd skoruðu í leiknum og gerði hinn 18 ára gamli Mason Greenwood tvennu. Greenwood er maður leiksins að mati Sky Sports. Hann fær níu í einkunn og fá fjórir liðsfélagar hans átta.
Hér að neðan er einkunnagjöfin í heild sinni.
Man Utd: De Gea (5), Wan-Bissaka (6), Lindelof (6), Maguire (6), Shaw (7), Matic (8), Pogba (7), Greenwood (9), Fernandes (8), Rashford (8), Martial (8).
Varamenn: Igahlo (6), Mata (6), James (7)
Bournemouth: Ramsdale (7), Rico (6), Kelly (6), Ake (6), Smith (5), Brooks (6), Lerma (6), L.Cook (6), Stanislas (7), Solanke (5), King (6).
Varamenn: H.Wilson (6), Stacey (6), Danjuma (7), Billing (6)
Maður leiksins: Mason Greenwood
Sjá einnig:
Solskjær: Mason einn sá besti, ef ekki sá besti, í að klára færi
Athugasemdir