Sigur Chelsea gegn Watford var þægilegur og Frank Lampard, stjóri Chelsea, var sáttur.
„Að halda hreinu á heimavelli og að skora þrjú mörk, ég er ánægður með það. Við spiluðum líka vel. Það er stundum mjög erfitt að spila gegn liði sem verst mjög aftarlega en okkur tókst vel upp," sagði Lampard.
„Við hefðum getað sent boltann betur í seinni hálfleiknum en við vörðumst föstum leikatriðum þeirra mjög vel. Þetta var þægilegt kvöld fyrir okkur."
Þægilegt kvöld fyrir Chelsea segir Lampard og mikilvægt að ná í stigin þrjú. Chelsea er í Meistaradeildarsæti þegar fimm umferðir eru eftir með tveimur stigum meira en Manchester United. Það er mikil spenna í þessu.
Athugasemdir