Fotbolti.net
09.09.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

„Líka leikur fyrir þjálfarann, verður hann áfram eða ekki?“

Sigurjón Jónsson, stuðningsmaður Breiðabliks.

Sigurjón Jónsson, stuðningsmaður Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Ef að menn stíga ekki upp á ögurstundu sem þessari eiga menn að finna sér ný áhugamál. Ég trúi ekki öðru en að stuðningsmenn rífi sig aðeins í gang og fjölmenni á völlinn," segir Sigurjón Jónsson, stuðningsmaður Breiðabliks.

Hann er gestur í sérstökum upphitunarþætti Fótbolta.net fyrir úrslitaleik Mjólkurbikarsins, viðureign Breiðablisk gegn Lengjudeildarmeisturum Aftureldingar.

Blikarnir hafa fengið mikla gagnrýni fyrir dapurt gengi og slaka spilamennsku.
„Það hafa verið einhver þyngsli yfir Kópavoginum og félaginu. Þetta hefur verið brekka fyrir Breiðabliksliðið og það hefur ekki haft góð áhrif að vera ekki að vinna leiki, ég man ekki hvenær síðasti sigur kom einu sinni. Þetta er leikmannahópur og umgjörð sem á að standa sig miklu betur, það er eitthvað sem er að flækjast fyrir. Andstæðingurinn á föstudaginn er ekki úr efstu hillu og ég hef fulla trú á því að þetta verði góður dagur fyrir okkur Blika á föstudaginn."

„Metnaðurinn er meiri og kröfurnar eru orðnar þannig að fyrir mitt leyti er þetta líka leikur fyrir þjálfarann, verður hann áfram eða ekki?" segir Sigurjón. Telur hann að Ólafur Ingi Skúlason verð látinn fara ef illa fer?

„Já já. Ef að hann klára ekki þetta verkefni þá veit ég ekki hvað skal taka til bragðs. En ég trúi ekki öðru en að Blikarnir vinni Eldinguna."

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.