Sverrir Ingi sagður fá 180 milljónir í árslaun í Danmörku


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ekstra bladet í Danmörku segir allt frágengið í kaupum danska félagsins Midtjylland á íslenska landsliðsmiðverðinum Sverri Inga Ingasyni frá PAOK í Grikklandi.
Í frétt blaðsins segir að talsvert sé síðan Sverrir og Midtjylland hafi gert samkomulag um kaup og kjör og nú séu félögin búin að ná samkomulagi.
Í frétt blaðsins segir að talsvert sé síðan Sverrir og Midtjylland hafi gert samkomulag um kaup og kjör og nú séu félögin búin að ná samkomulagi.
Sagt er að kaupverðið sé þrjár milljónir evra en geti eftir ákvæðum hækkað upp í fjóra milljónir evra, eða tæplega 600 milljónir íslenskra króna. Ákvæðin snúast um leikjafjölda, Evrópuþátttöku og mögulega titla.
Samkvæmt gríska miðlinum Sportime fær Sverrir 180 milljónir íslenskra króna í árslaun hjá Midtjylland.
Sverrir er 29 ára og hefur spilað 42 landsleiki og skorað þrjú mörk.
Samkvæmt gríska miðlinum Sportime fær Sverrir 180 milljónir íslenskra króna í árslaun hjá Midtjylland.
Sverrir er 29 ára og hefur spilað 42 landsleiki og skorað þrjú mörk.


