Heimild: Fylkir

Fylki hefur tekist að krækja í Mána Austmann Hilmarsson frá Fjölni, sem var markahæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð.
Máni Austmann er fæddur 1998 en ekki er tekið fram hvað hann gerir langan samning við Fylki.
Hann skoraði 12 mörk í Lengjudeildinni í fyrra en hefur ekkert skorað í fimm leikjum með botnliði Fjölnis í sumar. Fylkir er fjórum stigum fyrir ofan Fjölni í neðri hluta deildarinnar.
„Máni er öflug viðbót við leikmannahóp Fylkis og við reiknum með honum í hóp 18. júlí á móti Njarðvík, eftir að leikmannaglugginn opnar. Máni er öflugur sóknarmaður sem hefur fyrir löngu sannað sig í þessari deild og það styrkir hópinn að fá hann með okkur í baráttuna um að tryggja okkur aftur upp í efstu deild," segir Björn Viðar Ásbjörnsson, formaður meistaraflokksráðs Fylkis.
Máni á samtals 193 leiki í meistaraflokki á Íslandi og hefur skorað 41 mark í þeim, en hann hóf meistaraflokksferilinn hjá Stjörnunni og er með 48 leiki að baki í efstu deild. Í næstefstu deild hefur hann skorað 28 mörk í 92 leikjum.
„Ég hlakka mikið til að komast aftur á fullt í deildinni. Fylkir er með mjög sterkan leikmannahóp og skemmtilega blöndu af ungum og efnilegum leikmönnum í bland við þrautreynda eldri leikmenn og spennandi þjálfarateymi. Það er sett krafa á liðið að gera alvöru atlögu að því að fara beint upp aftur eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni í fyrra og ég held að ég eigi eftir að geta lagt mitt af mörkum í þeirri baráttu," sagði Máni við undirskriftina.
Athugasemdir