Rogers um verðmiðann: Ekki viss um að ég sé svo mikils virði

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Morgan Rogers, leikmaður Aston Villa og enska landsliðsins, segist ekki vera viss um hvort hann sé 130 milljóna punda virði.
Rogers hefur verið orðaður við Englandsmeistara Arsenal eftir góða frammistöðu með Aston Villa.
Samkvæmt enskum miðlum gæti Arsenal þurft að slá félagaskiptamet ensku úrvalsdeildarinnar til að fá hann.
Talað er um 130 milljóna punda verðmiða, sem myndi gera Rogers dýrari en Alexander Isak, sem gekk í raðir Liverpool frá Newcastle United á síðasta ári.
Rogers er staddur með enska landsliðinu á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, en segist ekki vera viss um að verðmiðinn sé sanngjarn.
„Ég er ekki viss um að ég sé svo mikils virði. Það er samt gaman að heyra það frá fólki, en ég leyfi ekki hávaðanum fyrir utan að hafa áhrif á mig,“ sagði Rogers.