23.07.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd á eftir brasilískum landsliðsmanni

Landarnir Danilo og Casemiro, fyrrum leikmaður Man Utd, í baráttunni

Mynd: EPA

Man Utd hefur lýst yfir áhuga á Danilo, miðjumanni Botafogo. BBC greinir frá.
Danilo er 25 ára gamall en hann var í HM hópi Brasilíu í sumar. Hann er að íhuga næsta skref eftir að Botafogo fékk um 25 milljón punda tilboð frá Palmeiras og Zenit St. Petersburg.
Man Utd er að skoða ýmsa möguleika, þar á meðal að kaupa ekki fleiri miðjumenn. Félagið keypti Yuri Tielemans frá Leicester og Andrey Santos frá Chelsea fyrr í sumar.
Newcastle hafði einnig áhuga á honum fyrr í sumar en félagið er nálagt því að ganga frá kaupum á Aladji Bamba frá Mónakó. Félagið hefur einnig keypt Sean Steur frá Ajax.
Danilo þekkir vel til á Englandi en hann spilaði með Nottingham Forest frá 2023-2025.