Fotbolti.net
04.08.05 - 18:52
Hafliði Breiðfjörð

Phil Neville til Everton (Staðfest)

Neville verður númer 18 hjá Everton

Neville verður númer 18 hjá Everton

Canon
Everton hafa gengið frá kaupum á Phil Neville leikmanni Manchester United og Neville hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið eftir að hann stóðst læknisskoðun í dag.
Neville sem er 28 ára gamall á að baki 52 landsleiki fyrir Englands hönd. Hann getur spilað jafnt á miðju sem í bakvarðarstöðunni. Gengið var frá félagaskiptunum strax í dag svo hann geti orðið löglegur með liðinu í þriðju umferð Meistaradeildar Evrópu gegn Villareal sem fer fram á þriðjudag.

Neville hefur verið allan sinn 10 ára feril hjá United þar sem hann kom upp úr unglingastarfinu ásamt bróður sínum, Gary Neville. Hjá United hefur hann unnið ensku úrvalsdeildina sex sinnum, bikarinn þrisvar og Meistaradeildina einu sinni.

Hann hefur átt erfitt með að vinna sér sæti í United liðinu upp á síðkastið og ákvað því að söðla um. Í samtali við vefsíðu Everton í dag sagði hann.

,,Ég ræddi við Alex Ferguson og það var ljóst að ég myndi ekki fá að spila nóg á næstu leiktíð. Ég var pirraður á síðustu leiktíð, hann vissi það, og við komumst að samkomulagi um að það væri best ef hann gæfi mér leyfi til að ræða við önnur félög."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.