04.08.06 - 12:06
Hafliði Breiðfjörð
Deportivo kaupir Barragan frá Liverpool (Staðfest)

Antonio Barragan og Jeffren Suarez fagna marki í leik U19 ára landsliðs Spánar gegn Þjóðverjum í lok maí.

Mynd: Getty Images

Spænska liðið Deportivo La Coruna hefur keypt Antonio Barragan varnarmann Liverpool og gert við hann fimm ára samning en þetta er staðfest á vefsíðu spænska félagsins.
Deportivo segja samninginn virði einnar milljónar evra og að Liverpool eigi kost á að kaupa leikmanninn aftur eftir annað eða þriðja árið á 700 þúsund evrur.
Barragan sem er 19 ára gamall hægri bakvörður kom til Liverpool frá Sevilla á Spáni í júlí 2005 eftir að hafa hafnað tækifæri á að gera atvinnumannasamning við spænska liðið.
Eini leikur hans með Liverpool var er hann kom inná sem varamaður í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í ágúst í fyrra gegn CSKA Sofia í Búlgaríu.
Hann var hluti af spænska landsliðinu sem vann EM undir 19 ára landsliða í Póllandi nú nýlega.