Fotbolti.net
04.08.06 - 12:10
Hafliði Breiðfjörð

Man Utd lánar Pique til Real Zaragoza (Staðfest)

Pique í leik með Manchester United á síðustu leiktíð.

Pique í leik með Manchester United á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Zaragoza á Spáni hafa fengið Gerard Pique varnarmann Manchester United á láni út leiktíðina sem senn fer að hefjast á Spáni en bæði félög staðfestu þetta í dag.
Pique er 19 ára gamall miðvörður sem var í liði Spánar sem vann Evrópumót undir 19 ára landsliða í Póllandi.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Zaragoza fær til liðs við sig eftir að Victor Fernandez tók við liðinu. Hinir voru Pablo Aimar, Andres D´Alessandro og varnarmennirnir Sergio Fernandez og Juanfran.

Zaragoza endaði í ellefta sæti spænsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tapaði fyrir Espanyol í úrslitaleik konungsbikarsins.

Pique lék sjö leiki með United á síðustu leiktíð, einn heilan leik gegn West Ham United og tvo sem varamaður í úrvalsdeildinni auk fjögurra í bikarleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.