Fotbolti.net
04.08.06 - 18:35
Hafliði Breiðfjörð

Martin O´Neill tekur við Aston Villa (Staðfest)

Martin O´Neill.

Martin O´Neill.

Canon

Mynd: Getty Images

Martin O´Neill hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Aston Villa og tekur því af starfinu af David O´Leary sem var rekinn frá félaginu í síðasta mánuði.
O´Neill sem er 54 ára gamall hafði ekki starfað í boltanum í rúmlega ár eða eftir að hann sagði starfi sínu hjá Celtic lausu í maí 2005 til að sinna veikri eiginkonu sinni, Geraldine.

O´Neill sem er Norður Írskur hafði áður en hann tók við Celtic verið knattspyrnustjóri hjá Wycombe og Leicester City. Með Celtic vann hann skosku úrvalsdeildina þrisvar.

Hann mun nú stýra Aston Villa liðinu í æfingaferð til Þýskalands og Hollands sem hefst á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.