04.08.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson
Alexandre Pato til AC Milan (Staðfest)

Pato í leik með Internacional gegn Barcelona

Mynd: Getty Images

Evrópumeistararnir í AC Milan hafa unnið kapphlaupið um brasillíska ungstirnið Alexandre Pato og slá þannig stórliðunum Chelsea, Real Madrid og Internazionale öllum við þar sem þau voru öll talin hafa mikinn áhuga á leikmanninum. Kapverðið er talið vera um 14,6 milljónir evra.
Milan höfðu verið á eftir þessum 17 ára strák í margar vikur og hann hafði áður lýst yfir miklum áhuga á því að ganga til liðs við Evrópumeistarana þar sem hann sagðist meðal annars alltaf spila með Milan í Playstation.
,,Hinn stórefnilegi Alexandre Pato mun æfa með Milan og mun geta spilað æfingaleiki frá 3.september, frá 3.janúar 2008 mun hann síðan geta spilað í opinberum leikjum" sagði í tilkynningu frá félaginu en félagagsskiptareglur á Ítalíu banna liðum að skrá leikmenn utan Evrópusambandsins áður en þeir verða 18 ára.
Pato sló í gegn með Brasilíu í Heimsmeistarakeppni U-20 ára landsliða sem fram fór í Kanada í síðasta mánuði og eftir það hafa Milan reynt allt sem þeir gátu til að krækja í ungstirnið.

Heimild: Reuters