Fotbolti.net
04.08.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson

Cacapa til Newcastle (Staðfest)

Cacapa til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle fengu í gær til sín brasilíska varnarmanninn Cacapa en hann var á frjálsri sölu eftir að hafa neitað að skrifa undir samning hjá franska liðinu Lyon þar sem hann var fyrirliði í 5 ár og varð 6 sinnum franskur meistari með félaginu.
Cacapa er Brasilíumaður og hefur leikið 3 landsleiki með liði Brasilíu en fékk einnig franskt ríkisfang í fyrra eftir að hafa dvalið í Frakklandi í 5 ár, hann lék með Lyon í 6 tímabil þar af sem fyrirliði í 5 ár og varð franskur meistari öll 6 tímabilin sem hann dvaldi þar.

Hann byrjaði feril sinn árið 1996 með Atletico Mineiro í heimalandinu og var valinn besti varnarmaður brasilísku deildarinnar árið 1999, þá byrjaði hann að vekja athygli liða frá Evrópu og Lyon keyptu hann árið 2000, hann spilaði 125 leiki fyrir frönsku meistarana og skoraði í þeim 7 mörk.

Heimild: Heimasíða Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.