Fotbolti.net
04.08.07 - 13:32
Hafliði Breiðfjörð

Beattie og Carney til Sheffield United (Staðfest)

James Beattie í leik með Everton.

James Beattie í leik með Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hafa gengið frá kaupum á James Beattie framherja Everton á 4 milljónir punda og auk þess gengu þeir í dag frá kaupum á ástralska landsliðsmanninum David Carne frá Sidney FC í Ástralíu. Báðir voru leikmennirnir kynntir fyrir stuðningsmönnum félagsins á Bramall Lane fyrir vináttuleik gegn Nottingham Forest í dag.
Bryan Robson stjóri Sheff Utd var ánægður með að fá Beattie sem er 29 ára gamall í Champtionship deildina. ,,Ég er hæstánægður. Við erum með framlínu núna sem er sú besta í Champtionship deildinni."

Robson ætlar að tefla Beattie fram í framlínu liðsins við hlið Billy Sharp sem einnig var keyptur í sumar.

Beattie lék 76 leiki með Everton, þar af 51 í byrjunarliði. Hann skoraði 13 mörk í þessum leikjum en hafði fallið niður goggunarröðina á Goodison Park.

Carney er 23 ára gamall miðjumaður sem vakti athygli fyrir frammistöðu sína með Ástralíu á Asíubikarnum nú í sumar en hann skrifaði undir þriggja ára samning.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.