04.09.07 - 17:01
Sindri Þór Þorgeirsson
Salomon Olembe til Wigan (Staðfest)

Wigan fá liðsstyrk

Mynd: Getty Images

Wigan fá liðsstyrk

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarliðið gekk í dag frá samningi við kamerúnska vinstri bakvörðinn Salomon Olembe en hann á þó ennþá eftir að fá alþjóðlega leikheimild. Olembe skrifaði undir eins árs samning við félagið.
Olembe er 26 ára en samningur hans við franska liðið Marseille rann út í júní og því hefur hann verið frjáls allra mála síðan þá. Hann hefur áður leikið með ensku liði þegar hann lék með Leeds United og hefur leikið 60 leiki fyrir landslið Kamerún þar sem hann spilaði meðal annars með liðinu á HM.
,,Hann veit hvaða kröfur eru gerðar í ensku úrvalsdeildinni, hann er klár leikmaður.Við höfum haft auga með honum í langan tíma og eins og með öll okkar kaup, þá höfum við skoðað hann mjög vel," sagði Chris Hutchins þjálfari Wigan við heimasíðu félagsins þegar gengið var frá samningnum.

Heimild: BBC