Fotbolti.net
04.09.18 - 18:05
Hulda Mýrdal

Fanndís: Hvaða rugl er í gangi hérna?

Auglýsing
Fanndís í leiknum í dag

Fanndís í leiknum í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland gerði 1-1 jafntefli við Tékkland í lokaleik undankeppni HM 2019. Fanndís spilaði allan leikinn í dag.
Jafntefli kom okkur ekki í umspil og niðurstaðan vonbrigði
\"Já en við náðum aldrei upp rythma í þessum leik en já þetta er hundfúlt.\"

Hefuru einhverja skýringu á því afhverju þið komist aldrei almennilega í gang?
\"Nei mér fannst við ofsalega slitnar og útum allt. Vorum ekki í þessu saman, allar út um allt. Ég hef ekki skýringu á því núna\"

Stress í hópnum þegar það er svona rosalega mikið undir?
\" Nei eða ég fann það ekki. Mér fannst við vera allar tilbúnar í þetta og við vissum alveg að við þyrftum að vinna þannig að við vissum nákvæmlega hvað við værum að fara út í og hvernig þær myndu spila. Þannig að nei, þetta átti ekki að koma okkur á óvart. Ég veit ekki hvað klikkaði\".

Þetta var slagur. Þær eru fastar fyrir og kunna öll trixin í bókinni. Urðu þið pirraðar of snemma?
\"Já mögulega en við vorum samt að reyna. Þetta var bara einn af þessum dögum. Við náðum engum rythma í okkar leik þannig að það einhvernveginn fór sem fór\".

Eftir rosalega rólegan seinni hálfleik kemur dramatík síðustu fimm. Hvernig tilfinningar fóru um skrokkinn þá? \"Bara hvaða rugl er í gangi hérna. Bara svolítið svoleiðis. Svona er þetta því miður\"

HM draumurinn er úti. Hvaða áhrif hefur það á landsliðið okkar?
\"Það er bara næsta verkefni. Það er eiginlega bara svoleiðis. Bara búið núna og maður fær að vera svekktur í einhverja daga\".

Nánar er rætt við Fanndísi í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.