Bara á Íslandi þekktur sem hreinræktuð nía - „Það verður hausverkur fyrir þjálfarann“

Skrifar undir tveggja ára samning.

Mynd: Stjarnan

Stjarnan er í 7. sæti Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Líst vel á Jón Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Emil Atlason skoraði þrennu í Evrópuleik Stjörnunnar í síðustu viku.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skrifar undir tveggja ára samning.

Mynd: Stjarnan
Árni Vilhjálmsson var á dögunum tilkynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar. Hann kemur til liðsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Al Sahel í Sádi-Arabíu rann út fyrr í sumar.
Fótbolti.net ræddi við Árna í upphafi vikunnar um skrefið heim og ákvörðunina að fara í Stjörnuna. Hægt er að hlusta á viðtalið við Árna í heild sinni í spilaranum neðst í fréttinni og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Gaman að taka þátt í slíku verkefni
Árni segir aðdragandann að skiptunum til Stjörnunnar hafa tekið um tvær vikur. „Baldvin Sturluson heyrði í mér og við tókum fund. Í rauninni fóru hjólin að snúast eftir það. Þórarinn Ingi var með okkur og hugmyndir hjá báðum aðilum smullu. Þá varð þetta þannig séð frágengið, fyrir utan þessi litlu smáatriði í samningum,“ segir Árni.
Hvað heillaði við Stjörnuna?
„Aðallega framtíðarhugsunin. Ég skrifa undir tveggja ára samning. Þeir eru með hörkulið. Ótrúlega flotta leikmenn. Þeir eru líka með unga leikmenn sem eru að koma upp. Það er framtíðarsýn - þeir vilja taka stökkið hærra. Það er mjög gaman að taka þátt í þannig verkefni. Það heillaði mest ásamt því að vera auðvitað gott lið.“
Leiðin liggur upp á við
„Það urðu auðvitað þjálfaraskipti. Það kemur nýr þjálfari með nýjar áherslur og annað. Ég held að leiðin liggi bara upp á við,“ segir Árni og var hann spurður út í Jón Þór Hauksson sem tók við liðinu eftir brottrekstur Jökuls Elísabetarsonar.
„Mér líst mjög vel á Jón Þór. Það sést náttúrulega líka á spilamennskunni. Ég hafði enga skoðun á því sem var að gerast áður en ég skrifa undir. Fyrstu dagarnir og fyrsti kynnin af Jóni Þóri eru bara af því góða, mér líst mjög vel á hann.“
Mismunandi týpur í sömu stöðu
Stjarnan er með gífurlega breidd sóknarlega. Þeir Emil Atlason og Andri Rúnar Bjarnason eru framherjar Stjörnunnar og nú bætist Árni við inn í flóruna.
„Í fyrsta lagi er gott fyrir öll lið að vera með góða leikmenn í öllum stöðum. Hvað þá marga góða leikmenn. Á sama tíma erum við allir þrír mjög mismunandi týpur af leikmönnum, þó svo að við spilum svipaða stöðu.
Það er gott að vera með mismunandi týpur inni á vellinum. Ég hef spilað með Emil áður og mikið á móti Andra. Ég held að við séum þrír leikmenn sem er mjög auðvelt að spila með og getum hentað hvorum öðrum mjög vel,“ segir Árni.
Hausverkur fyrir þjálfarann
„Á Íslandi er ég þekktur fyrir að vera framherji. En í öllum erlendum liðum sem ég hef spilað í hef ég verið á kantinum eða aðeins fyrir aftan framherja. Stundum var ég í tveggja framherja kerfi og þá var ég frammi. Ég get leyst aðrar stöður. Meira að segja hjá Breiðabliki þá var ég úti vinstra megin en eins og framherji í rauninni. Það er bara á Íslandi sem ég er þekktur fyrir að vera bókstaflega framherji.“
„Já eflaust, ég held að það myndi alveg henta okkur. En við erum með góða kantmenn líka. Við erum með frábæra sóknarlínu og lið yfir höfuð. Það verður bara hausverkur fyrir þjálfarann,“ sagði Árni léttur að lokum.