Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. september 2022 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bræðurnir Aaron og Jacob Ramsey með eins stoðsendingar í gær
Mynd: EPA

Aaron og Jacob Ramsey eru bræður sem komu upp í gegnum unglingastarfið hjá Aston Villa og eru að gera það gott þessa dagana.


Aaron er 19 ára og á láni hjá Norwich í Championship deildinni á meðan eldri bróðirinn Jacob er hjá uppeldisfélaginu í úrvalsdeildinni.

Þeir voru báðir í byrjunarliðunum í gær þegar Norwich vann þægilegan sigur á Coventry á meðan Villa var óheppið að sigra ekki ríkjandi Englandsmeistara Manchester City í 1-1 jafntefli.

Aaron skapaði mark fyrir Josh Sargent á meðan Jacob lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Leon Bailey og voru stoðsendingarnar keimlíkar, eins og má sjá hér fyrir neðan.

Bræðurnir eiga sín á milli yfir 40 leiki fyrir yngri landslið Englands.


Athugasemdir
banner
banner
banner