04.10.05 - 08:29
Magnús Már Einarsson
Marko Pavlov semur við Caen (Staðfest)

Mynd: Úr einkasafni

Mynd: Úr einkasafni
Hinn 17 ára gamli Marko Pavlov úr Stjörnunni mun skrifa undir tveggja ára samning við franska liðið Caen á næstu dögum. Hann mun leika með vara og unglingaliði félagsins sem féll niður í 2.deild síðastliði vor.
Pavov sem getur leikið á miðjunni eða í sókninni á 9 landsleiki að baki bæði með U-17 og U-19 ára landsliði Íslands. Faðir hans Dragi Pavlov sem hefur þjálfað hér á landi undanfarin ár lék í fimm ár í Frakklandi með Sedan á sínum tíma.
Eins og við höfum greint frá þá hefur Marko áður farið til reynslu hjá Mallorca og Genk en auk þess hafa Leeds, Club Brugge og Real Sociedad lýst yfir áhuga á honum.
Heimild: Morgunblaðið
Sjá einnig:
Leeds berst við Mallorca um íslenskan dreng
Íslenskur strákur sem var til reynslu hjá Mallorca er eftirsóttur