Fotbolti.net
04.10.17 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Kári Árna: Heimir veit hvað ég get og fyrir hvað ég stend

Auglýsing
Kári Árnason.

Kári Árnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Kári Árnason hefur leikið mjög vel með Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni undanfarnar vikur. Liðið er á toppnum í Skotlandi ásamt Celtic og Kári hefur trú á að Aberdeen geti orðið meistari.

„Ég hef alveg trú á því. Það þarf aðallega að fá þá til að hafa trú á því. Celtic hefur verið með einokunarstöðum á öllum titlum þarna upp á síðkastið en ég sé það breytast,\" sagði Kári.

„Menn bera svolítið mikla virðingu fyrir Celtic. Það er erfitt að fara á þeirra heimavöll þar sem þeir tapa ekki mikið af stigum,\" sagði Kári en hann hefur leikið frábærlega undanfarnar vikur.
„Það tók mig smá tíma að komast inn í þetta en núna er ég búinn að því. Það er smá aðlögun að koma frá Svíþjóð og Kýpur í þetta aftur. Maður þurfti aðeins að mótivera sig á annan hátt. Þetta er öðruvísi fótbolti.\"

„Þetta snýst mikið um fyrsta boltann og vinna einvígið sem þú ert í frekar en að lesa leikinn og spila út úr vörninni. Þetta er svolítið annað. Ég þurfti aðeins að kúpla mig inn á það. Um leið og ég gerði það þá hefur gengið vel.\"


Kári hefur verið fastamaður í vörn Íslands í mörg ár en hann byrjaði á bekknum í síðasta leik gegn Úkraínu. Sverrir Ingi Ingason kom þá inn í vörnina. Býst Kári við að byrja gegn Tyrkjum á föstudaginn?

„Það er undir Heimi (Hallgrímssyni) komið. Ég er ekkert að stressa mig á því. Heimir veit alveg hvað ég get og fyrir hvað ég stend. Ef hann þarf á mér að halda þá er ég klár,\" sagði Kári sem vonast til að íslenska liðið nái að koma Tyrkjum í vesen. „Við vitum að ef illa gengur hjá þeim þá getur stuðningurinn snúið upp í andhverfu sína og truflað þá. Við þurfum að nota það,\" sagði Kári.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.