04.10.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Dembélé neitar að selja sig: Hef ekki tíma fyrir þessa hluti

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ousmane Dembélé, sóknarleikmaður PSG og franska landsliðsins, vann Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu í fyrra og kemur aftur til greina í ár.

TENGT EFNI
Yamal um Dembélé: Er það ekki vinur Kylian?
Aðrir leikmenn eru taldir líklegri heldur en hann til að hreppa verðlaunin en Dembélé neitar að taka virkan þátt í umræðunni um Ballon d'Or þrátt fyrir stöðug ummæli frá Kylian Mbappé og Lamine Yamal.
Dembélé og Mbappé eru góðir vinir eftir að hafa leikið saman fyrir PSG en þeir eru í dag eingöngu samherjar í ógnarsterku landsliði Frakklands.
„Ég er ekkert að hugsa um þessa umræðu, þetta er bara eitthvað á samfélagsmiðlum," svaraði Dembélé þegar hann var spurður út í ummæli Mbappé um Ballon d'Or verðlaunin. „Ég pæli ekkert í þessu. Ég er 29 ára gamall og ég hef ekki tíma fyrir þessa hluti."
En af hverju ættu menn að kjósa Dembélé framyfir Mbappé eða Yamal?
„Ég er ekki með nein rök fyrir því, ég vil ekki selja sjálfan mig. Ég mun aldrei selja sjálfan mig, aldrei!"
Dembélé er mjög ánægður með lífið í París enda hefur hann verið í sigurliði Meistaradeildar Evrópu síðustu tvö ár í röð. Hann er verulega hrifinn af nýjum landsliðsþjálfara Zinedine Zidane og stoltur af sinni eigin spilamennsku.
„Ég var hjá Barcelona í nokkur ár og sá nokkra ótrúlega fótboltamenn þar en einn þeirra var fullkominn leikmaður... Lionel Messi. Þegar ég sá hann þá vissi ég hvernig leikmaður ég vildi verða. Ég vildi verða fullkominn leikmaður sem hjálpar liðinu með öllu sem hann gerir og mér líður eins og ég sé orðinn sá leikmaður."