04.11.05 - 11:50
Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Þórhallsson í Grindavík (Staðfest)

Mynd: Pedromyndir/Þórir Ó. Tryggvason

Mynd: Pedromyndir/Þórir Ó. Tryggvason
Jóhann Þórhallsson framherji KA á Akureyri tók í morgun ákvörðun um að ganga til liðs við Grindavík. Jóhann hafði verið að íhuga tilboð frá Grindavík og Val og var talið að hann gengi til liðs við Val. Hann tók hinsvegar óvænta ákvörðun og samþykkti tilboð Grindavíkur nú fyrir hádegi og gerir tveggja ára samning við félagið. Jóhann staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Jóhann sem er uppalinn hjá Þór á Akureyri hefur leikið síðastliðin tvö ár með erkiféndum Þórs, KA. Hann hefur einnig leikið eina leiktíð með KR hér á landi en hætti hjá félaginu eftir að hann fékk heimþrá norður á Akureyri.
Hann skoraði ellefu mörk í sextán leikjum fyrir KA í 1. deildinni í sumar og var að mótinu valinn í lið ársins sem þjálfarar og fyrirliðar deildarinnar völdu fyrir Fótbolta.net.
Hjá Grindavík hittir Jóhann fyrir tvo Þórsara, þá Óðin Árnason og Orra Frey Hjaltalín sem hafa leikið með liðinu undanfarin ár. Hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Grindavíkur eftir að tímabilinu lauk, hinn var Jóhann Helgason sem einnig kom frá KA.