Fotbolti.net
04.11.05 - 11:51
Hafliði Breiðfjörð

Jakob Spangsberg og Andri Valur í Val (Staðfest)

Jakob Spangsberg

Jakob Spangsberg

Canon

Mynd: <a href="http://www.leiknir.com"target="_blank">Leiknir.com</a>

Valur hefur náð munnlegu samkomulagi við tvo nýja leikmenn um að ganga til liðs við félagið. Þetta eru þeir Andri Valur Ívarsson sem kemur frá Völsungi og Jakob Spangsberg sem kemur frá Leikni.
Andri Valur sem er 25 ára er uppalinn á Húsavík og hefur spilað með Völsungum undanfarin ár. Andri Valur skoraði 7 mörk fyrir Völsung í 1.deildinni og endaði í 4 sæti yfir markahæstu leikmenn 1.deildar 2005. Ljóst er að með komu hans til Vals hefur félagið fengið til liðs við sig sterkan leikmann sem kemur til með að styrkja leikmannahóp félagsins. Stjórn Vals hefur náð samkomulagi við stjórn Völsungs um að Andri Valur muni gerast leikmaður Vals.

Jakob Spangsberg sem er 23 ára hefur spilað undanfarin tvö ár með Leikni Reykjavík. Jakob Spangsberg skoraði grimmt með Leiknismönnum og í ár skoraði hann 6 mörk í 7 leikjum í 2.deild. Árið 2004 skoraði hann 11.mörk í 18.leikjum í 2.deild með Leikni.

Gaman er frá því að segja að Andri Valur er annar leikmaðurinn sem gengur til félagsins í vikunni og heitir nafninu, Valur eins og félagið. Hinn var Valur Fannar Gíslason sem kom frá Fylki. Auk þeirra gekk Pálmi Rafn Pálmason í raðir Vals í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.