04.11.06 - 18:24
Hafliði Breiðfjörð
Scott Ramsay í Grindavík (Staðfest)

Orri Freyr, Scott Ramsay, Jónas Þórhallsson formaður knattspyrudeildar Grindavíkur og Eyþór Atli.

Mynd: UMFG.is

Skotinn Scott Ramsay er genginn í raðir Grindvíkinga á ný eftir nokkurra ára fjarveru en þetta er staðfest á vefsíðu félagsins í dag. Ramsay fór frá Grindavík í KR í janúar 2003 þar sem hann stoppaði stutt og gekk til liðs við Keflavík í upphafi móts það ár.
Ramsay var reyndar félagsbundinn Grindvík sumarið 2005 en lék ekkert með liðinu. Hann lék með Víði í Garði í sumar þar sem hann sýndi gamla takta og skoraði sex mörk í fimm leikjum. Ramsay sem hefur nýlokið afplánun á fangelsisvist ætlar sér á fullu í boltann á ný og ákvað að ganga til liðs við Grindavík að nýju.
Auk komu Scott Ramsay framlengdu þeir Orri Freyr Hjaltalín og Eyþór Atli Einarsson samninga sína við félagið í dag.
Grindvíkingar hafa misst sex leikmenn síðan liðið féll úr Landsbankadeildinni í haust. Þetta eru þeir Óskar Örn Hauksson og Jóhann Þórhallsson sem fóru í KR, David Hannah og Kristján Valdimarsson í Fylkir, Jóhann Helgason í Val auk þess sem Óðinn Árnason ætlar sér að fara í annað félag.
Milan Stefán Jancovic hefur tekið við þjálfun Grindavíkur.