Fotbolti.net
04.11.20 - 18:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mynd: United gleymdi sér alveg í varnarleiknum

Mynd: United gleymdi sér alveg í varnarleiknum
Canon

Mynd: Getty Images

Istanbul Basaksehir leiðir 1-0 gegn Manchester United eftir um 35 mínútna leik. Eina mark leiksins til þessa skoraði Demba Ba á 13. mínútu leiksins.

Markið kom í kjölfarið á föstu leikatriði hjá United. Boltinn var í leik úti hægra megin á sóknarhelmingi United og var Nemanja Matic aftasti varnarmaður. Aaron Wan-Bissaka tók hlaupið með boltann og átti fyrirgjöf sem var hreinsuð.

Demba Ba var fremsti maður Basaksehir og nýtti hann sér það að Matic var að horfa á boltann og færði sig ofar á völlinn þegar Wan-Bissaka fór af stað með botlann. Matic tók ekki eftir þessari hreyfingu Ba og Wan-Bissaka var farinn úr sinni stöðu.

Fyrirgjöf Wan-Bissaka var hreinsuð, heimamenn áttu tvær sendingar og svo kom ein löng sending í gegn og Ba var kominn einn gegn Dean Henderson. Ba gerði engin mistök og skoraði, engin rangstaða þar sem Ba var vel inn á eigin vallarhelmingi þegar hann fékk sendinguna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.