04.12.06 - 12:38
Hafliði Breiðfjörð
Vanja Stefanovic í Val (Staðfest)

Vanja Stefanovic í leik með Breiðablik gegn KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Vanja Stefanovic er gengin í raðir Íslands- og bikarmeistara Vals í kvennaknattspyrnunni og hefur gert tveggja ára samning en hún lék með Breiðablik á síðutu leiktíð og þar áður hjá KR og Fjölni.
Vanja er fyrrum Serbneskur landsliðsmaður og hefur leikið rúmlega 55 A-landsliðsleiki fyrir þjóð sína, ásamt því að hafa leikið yfir 15 leiki í Evrópukeppni félagsliða.
Vanja kom til Íslands 2004 og lék í 2 mánuði með Fjölni áður en hún gekk til liðs við KR rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans það sumar. Hún samdi svo við Breiðablik fyrir síðustu leiktíð og lék með þeim í sumar en hefur nú ákveðið að ganga til liðs við Val.
Hún lék átta leiki með Breiðablik í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim sex mörk. Hún skoraði tvö mörk í leiknum um Meistara Meistaranna síðasta vor er Breiðablik vann Val 5-1.
Hún lék 19 leiki með KR og skoraði í þeim fimm mörk og með Fjölni lék hún 11 leiki og skoraði eitt mark.