Fotbolti.net
04.12.14 - 12:35
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Leikið í miðri viku

Steven Gerrard er á miðju liðsins.

Steven Gerrard er á miðju liðsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Jólin nálgast en leikið var í ensku úrvalsdeildinni á þriðjudag og miðvikudag. Chelsea heldur sex stiga forystu á Manchester City en bæði lið unnu stóra og örugga sigra.

Arsenal, Manchester United og Liverpool fögnuðu einnig sigrum. Swansea vann QPR, West Ham heldur áfram að gera góða hluti og Aston Villa vann langþráðan sigur.


Fraser Forster (Southampton)
Síðustu vikur hafa verið erfiðar fyrir þennan fyrrum markvörð Celtic en hann átti nokkrar toppvörslur gegn Arsenal þó hann hafi ekki getað komið í veg fyrir sigurmark í lokin.

Pablo Zabaleta (Manchester City)
Sunderland lá í valnum gegn Manchester City þar sem Zabaleta var meðal markaskorara.

Jores Okore (Aston Villa)
Er farinn að sýna getu sína eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.

Kyle Bartley (Swansea City)
Byrjaði tímabilið sem varamaður en hefur blómstrað að undanförnu og var flottur þegar Swansea hélt marki sínu hreinu gegn Queens Park Rangers.

Aaron Cresswell (West Ham United)
Átti frábæran leik gegn West Bromwich Albion.

Eden Hazard (Chelsea)
Hefur verið mikilvægasti leikmaður Chelsea á tímabilinu ásamt Diego Costa og Cesc Fabregas.

Tom Huddlestone (Hull City)
Var saknað í tapleiknum gegn Manchester United en sýndi styrk sinn þegar Hull náði jafntefli við Everton.

Steven Gerrard (Liverpool)
Mætti úthvíldur og ferskur og var maður leiksins gegn Leicester þar sem hann skoraði sitt fyrsta mark úr opnum leik á tímabilinu.

Juan Mata (Manchester United)
Spánverjinn skoraði sigurmarkið fyrir United gegn Stoke.

Alexis Sanchez (Arsenal)
Heldur áfram að fara á kostum og skoraði sigurmarkið gegn Southampton.

Sergio Aguero (Manchester City)
Tætti Sunderland í sig.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Aguero var á skotskónum.

Aguero var á skotskónum.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.