Fotbolti.net
04.12.19 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mourinho: Ég er í Netflix þáttaröð - Ekki segja Amazon

Mourinho: Ég er í Netflix þáttaröð - Ekki segja Amazon
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho var ráðinn sem knattspyrnustjóri Tottenham í nóvember og verður því partur af heimildarþáttum <i>Amazon Prime Video</i> sem fjalla um félagið í Norður-London.
Fréttamanni Mirror barst veður af því að Mourinho væri einnig í hlutverki í þáttaröð á Netflix, sem er einn helsti keppinautur Amazon, og játaði portúgalski stjórinn því.

„Ég er í þætti á Netflix, það er rétt. Það er talað við átta þjálfara í átta mismunandi íþróttum. Það er búið að taka þetta upp, ég veit ekki hvenær það kemur út. Mínum parti er lokið," sagði Mourinho.

„Það er líka talað við þjálfara í NBA, Formúlu 1, tennis, NFL og rúgbý, en ekki í krikket! Og strákar, þeir hjá Amazon mega ekki vita af þessu."

Mourinho mætir sínum fyrrum vinnuveitendum í Manchester United í kvöld. Tottenham er búið að vinna fyrstu þrjá leikina undir hans stjórn á meðan Man Utd er í sögulegri lægð undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.