Fotbolti.net
05.01.06 - 11:08
Hafliði Breiðfjörð

Vidic til Man Utd (Staðfest)

Vidic til Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hafa gengið frá 7 milljóna kaupum á Nemanja Vidic varnarmanni Serbíu & Svartfjallalands sem kemur frá Spartak Moskvu í Rússlandi. Vidic sem er 24 ára gamall er búinn að fá atvinnuleyfið sem hann hefur beðið eftir og mun nú hitta nýja liðsfélaga sína á morgun.
Sir Alex Ferguson stjóri Man Utd sagði við sjónvarpsstöð félagsins, MUTV: ,,Góðir varnarmenn vinna fyrir þig. Drengurinn er alvöru leikmaður og íþróttamaður. Þú þarft góða varnarmenn og það er nákvæmlega það sem þessi drengur er."

Vidic gekk í raðir Spartak frá Rauðu Stjörnunni í Belgrad í júlí 2004. Hann er einn fjögurra varnarmanna Serbíu & Svartfjallalands sem unnu sér gott orð fyrir að fá aðeins á sig eitt mark í undankeppni HM 2006.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.