05.01.07 - 13:59
Andri Fannar Stefánsson
David Unsworth til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wigan hafa klófest David Unsworth frá keppinautunum í úrvalsdeildinni, Sheffield United en Unsworth var ekki í framtíðarplönunum hjá Neil Warnock stjóra Sheffield.
Þessi 33 ára varnarmaður sem lék á árum áður með Everton var settur á sölulistann og Wigan ákváðu að fá hann til liðsins í von um að styrkja vörnina.
Unsworth er þriðju kaup Wigan í mánuðinum en þeir hafa einnig fengið til liðs við sig Kristofer Haestad og Andres Granqvist.
Þessa stundina er Wigan í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni en þeir eiga leik í enska bikarnum gegn Portsmouth á morgun.

Heimild: Sky